Breyting á færlsuhirði í netverslun artless
artless hefur kosið að skipta um færsluhirði í vefverslun. artless hefur fært viðskipti sín frá Rapyd yfir til SaltPay. Ástæðan fyrir breytingunni eru tengsl Rapyd við Ísrael.
Sniðganga á ísraelskri framleiðslu og alþjóðlegum fyrirtækjum sem hagnast á þjóðarmorði ísraelskra stjórnvalda á Palestínu er friðsamleg leið til þess að styðja palestínsku þjóðina í baráttunni fyrir tilverurétti sínum og afnýlenduvæðingu á stolnu palestínsku landsvæði.
Friðarkveðjur,
Heiðdís Halla, artless